Hanna frá Jaðri - sýningaropnun

Laugardaginn 17. október kl. 14:00 opnar sýning eftir Hönnu frá Jaðri. 

Hanna frá Jaðri er útskrifaður hönnuður frá deildinni identity við Design Academy Eindhoven. Hún hefur einnig lagt stund á grafíska hönnun og listkennslu við Listaháskóla Íslands.

Frá árinu 2009 hefur Hanna unnið bæði sjálfstætti sem og með með hugmynda- og viðburðasmiðjunni Attikatta. Hún stofnaði Ðyslextwhere 2003 en þar tengir hún saman tungumál og handverk. Hugmyndir um fullkomleika sem tengjast oft prjónauppskriftum fá að fjúka fyrir villum og útúrsnúning og verða vettvangur fyrir samtal um m.a. lesblindu og í leið einhverskonar gjörningur á göngu.

Áhugi hennar á máli, skynjun og því hvernig við tengjumst heiminum hefur birst með ólíkum hætti í verkum hennar í gegnum árin. Orð og orðasambönd birtast bæði í að myndmáli og áþreifanlegu formi. Hún hefur sérstakan áhuga á margræðni orða, útúrsnúningum, stafsetningu og þeim breytingum sem geta orðið á merkingu þegar orð er fært úr sínu hefðbundna samhengi.

Öll hjartanlega velkomin.
Léttar veitingar í boði.