Sýningaropnanir: Talaðu við mig um vonina - leirgerfingar og skilaboðaskálar og Kollhnís

Í tilefni af Aðventuhelgi í Stykkishólmi opna tvær nýjar sýningar í Byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla laugardaginn 28. nóvember kl. 13:00-15:00.
 
Anna Sigríður Gunnarsdóttir opnar sýninguna Talaðu við mig um vonina - leirgerfingar og skilaboðaskálar.
Steinnun Gríma opnar ljósmyndasýninguna Kollhnís.
 
Anna Sigríður Gunnarsdóttir er fædd í Reykjavík 1960 en hefur verið búsett í Stykkishólmi síðan 1982. Hún lærði mótun í leir og tengd efni í Myndlistaskólanum í Reykjavík.
 
Steinunn Gríma Kristinsdóttir er ljósmyndari sem hefur meðal annars fengist við heimildaljósmyndun. Í verkum sínum fjallar hún um mannlíf, náttúru og tengsl fólks við umhverfi sitt. Hún notar ljósmyndir til að segja sögur og vekja athygli á samfélagslegum málefnum.
 
Öll hjartanlega velkomin.
Léttar veitingar í boði.