Ryðverk, sýning eftir Írisi Maríu Leifsdóttir

Ryðverk Írisar Maríu Leifsdóttur eru samvinna listamanns, veðurs og tíma. Einkasýningin hennar, Ryðverk, opnar í Byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla þann 16. maí kl. 14:00. 

Járnplöturnar standa undir berum himni þar sem úrkoma og önnur veðurskilyrði vinna á málminum, og þannig er hvert verk bundið þeim tíma og stað þar sem eyðingarmáttur náttúrinnar hefur mótað það. Útkoman er því jafn ófyrirsjáanleg og tíðarfarið sem hún endurspeglar.

Ryð er líkt og kaldur, hægur bruni. Verkin eru unnin úr svörtu stáli sem oxast smátt og smátt undir áhrifum súrefnis, ysta lagið tærist og myndar rauðleita húð. Með því að bera eld að ryðinu oxast málmurinn enn frekar. Efnaferlið skapar lifandi samspil náttúrulegra lita á grófu yfirborði. Þannig verða djúpbrúnir, appelsínugulir og rauðleitir tónar til úr svörtu stálinu. 

Írs María hefur hannað sérstakar veggfestingar sem halda verkunum frá veggnum svo þau kasti skugga á vegginn. Skugginn verður þannig órjúfanlegur hluti verksins; hann breytist eftir birtu og tíma dags. 

Ryðverkin eru skrásetning. Ryðið tekur á sig lífrænt form sem stjórnast af síbreytilegu ferli veðurs og niðurbrots. Þannig varðveitist minning veðursins í sjálfu efninu.

Íris María Leifsdóttir (f. 1993) er myndlistarkona sem skapar veðruð verk. Hún útskrifast í sumar með kennsluréttindi í listum við Listaháskóla Íslands, hefur lokið meistaragráðu í myndlist frá sama skóla, bakkalárgráðu í félagsfræði frá Háskóla Íslands og diplóma í listmálun frá Myndlistaskólanum í Reykjavík. Íris María hefur sýnt á söfnum og galleríum bæði hérlendis og á Grænlandi.