Jólaopnun safnins hófst 29. nóvember síðastliðinn.
Þá fór fram markaður á safninu og um kvöldið fór fram viðbururðinn Gömlu íslensk jólafólin. Jón Jónsson og Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingar á Ströndum rifjuðuupp næstum því gleymdar sögur um íslensku jólafólin. Flestir þekkja gamlar og ljótar sögur um Grýlu sem var hryllileg mannæta og jólasveinana sem forðum voru til vandræða hvar sem þeir komu. Sumir í fjölskyldunni eru samt að mestu gleymdir eins og fyrri eiginmenn Grýlu og jólasveinar eins og Lungnaskvettir, Flórsleikir eða Flotnös.Sagt var frá óhugnanlegum sögum og þjóðtrú um Grýlu og hennar hyski. Þau feðgin gáfu einnig út bók um efnið núna fyrir jólin sem ber yfirskriftina Gömlu íslensku jólafólin: fróðleikur og ljótar sögur, og verða með hana með sér.
Jólamarkaðir verða einnig haldndi fimmtudagskvöldin 11. og 18. desember frá kl. 20:00-22:00.
Safnið er opið: mán., þri., mið. og fös. kl. 13:00 - 17:00.
Fimmtudaga kl. 20:00 - 22:00.
Laugardaga kl. 12:00 - 15:00.