Sýningin Stiklur eftir Elvu Hreiðarsdóttur opnaði í Byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla þann 15. ágúst.
Sandra Thomsen Halldórsdóttir flutti nokkur lög í tilefni af opnunni.
Á sýningunni sýnir Elva myndverk unnin með blandaðri tækni. Hún er fædd og uppalin í Ólafsvík og eru verk hennar á sýningunni STIKLUR túlkun hennar á hughrifum sem hún hefur orðið fyrir á ferð sinni um Snæfellsnes. Árið 2023 fór Elva fótgangandi umhverfis Snæfellsjökul í listrænum tilgangi þar sem hún velti m.a. fyrir sér áhrifum upplifunar á náttúru á sköpunarferlið á eigin skinni. Öll verkin eru til sölu. Elva hefur starfað sem myndlistamaður og myndlistakennari frá árinu 1989. Hún lauk námi frá Kennaraháskóla Íslands (B.ed) 1989, Listaháskóla Íslands (BA) 2000 og (MA) 2023. Þá hefur hún sótt fjölda námskeiða hérlendis og erlendis. Elva hefur haldið um þrjátíu einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga bæði hér heima og erlendis. Hún hefur einnig kennt myndlist víða og haldið fjölda námskeiða fyrir börn, ungmenni, myndlistafólk og kennara. Nánari upplýsingar um Elvu má finna á www.elva.is eða senda tölvupóst á elvahre@vortex.is.